| |
Skráðu netfangið þitt hér og fylgstu með! |
|
|
| Innra mat |
| Ein af lagalegum skyldum grunnskóla á Íslandi er að framkvæma innra mat á starfssemi sinni. Tilgangur með slíku mati er að skólar geti fundið sterkar hliðar sínar og veikar með það fyrir augum að byggja á sterku hliðunum og jafnframt að reyna að bæta úr þeim veiku. Skólum er í sjálfsvald sett hvernig þeir framkvæma þetta mat. Í Höfðaskóla hefur verið gerð áætlun um hvernig matið skuli framkvæmt að þessu sinni. Hér er um þriggja ára áætlun að ræða sem þó er uppbyggð þannig að áfanganiðurstöður fást á hverju ári. Við erum nú á öðru ári áætlunarinnar en áfangaskýrslu vegna fyrsta ársins má sjá hér á heimasíðu skólans. |
|
|
|
|