Höfðaskóli | Inflúensa

 
Velkomin:
  Fréttir
  Inflúensa
  Skólinn
  Nemendur
  Starfsmenn
  Skólastarf 2009 - 2010
  Skóla- og bekkjarnámskrár
  Stoðþjónusta
  Innkaupalistar 2010-2011
  Foreldrafélag
  List- og verkgreinar
  Skólamáltíðir
  Myndir úr skólastarfinu >
  Ýmislegt frá bekkjunum
  Innra mat
 
 
 
  Póstlisti skóla:
  Skráðu netfangið þitt hér og fylgstu með!
  Skrá
6.9.2010
 

 
Til foreldra/forráðamanna

Heimsfaraldur inflúensu A(H1N1)v sem ríður yfir um þessar mundir er tiltölulega vægur
og skapar því ekki forsendur fyrir skorðum við skólahaldi. Skólastarf á að geta hafist með
eðlilegum hætti næstu daga og vikur þrátt fyrir heimsfaraldur inflúensunnar. En seinna
þegar faraldurinn er í hámarki getur þurft að taka afstöðu til þess hvort tilteknir skólar geti
haldið áfram starfi vegna mikilla fjarvista nemanda og/eða kennara.

Skólastjórnendur vinna í samvinnu við menntamálaráðuneyti að samræmdri
viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs sem stuðlar að samræmdum aðgerðum skóla
um allt land.

Vakin skal athygli á því að í síbreytilegum faraldri kunna að koma aðstæður þar sem
endurmeta þarf aðgerðir.

Aðgerðir um þessar mundir miða að því að halda skólastarfsemi gangandi og draga úr
smithættu.

Helstu leiðir til að draga úr smiti:
· Veikist nemandi þannig að einkennin bendi til inflúensu, er honum ráðlagt að halda
sig heima í sjö daga frá upphafi veikinda.
· Ekki er þörf á því að aðrir sem eru einkennalausir á heimili sjúklings haldi sig heima.
· Hreinlæti skiptir mestu máli í að draga úr smithættu. Þar ber fyrst að nefna handþvott
og að fólk hafi á sér einnota pappírsþurrkur til að hnerra eða hósta í.
· Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar
ríkislögreglustjóra á www.influensa.is

Seltjarnarnesi, 14. ágúst 2009

Sóttvarnalæknir
Ríkislögreglustjóri, almannavarnadeild








KÆRU NEMENDUR OG FORELDRAR.

EFTIRFARANDI UPPLÝSINGAR ERU TEKNAR ÚR BRÉFI TIL ALLRA SKÓLASTJÓRNENDA FRÁ SÓTTVARNALÆKNI OG ALMANNAVARNADEILD RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA DAGSETTU 12. ÁGÚST 2009.

Til skólastjórna
1. Heimsfaraldur inflúensu A(H1N1)v sem ríður yfir um þessar mundir er tiltölulega vægur og skapar því ekki forsendur fyrir skorðum við skólahaldi. Skólastarf á að geta hafist með eðlilegum hætti næstu daga og vikur þrátt fyrir heimsfaraldur inflúensunnar.

2. Unnið er að viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs fyrir skóla landsins í samvinnu menntamálaráðuneytis og skólastjórnenda. Gert er ráð fyrir að sú áætlun verði tilbúin fyrir 1. september 2009.

3. Skólastjórnendur eru hvattir til að halda því á lofti við nemendur og starfsmenn skóla að hreinlæti skiptir mestu máli í að draga úr smithættu. Þar ber fyrst að nefna handþvott og að fólk hafi á sér einnota pappírsþurrkur til að hnerra eða hósta í. Vísað er á heimasíðuna www.influensa.is þar sem frekari upplýsingar er að finna.

4. Veikist nemandi þannig að einkennin bendi til inflúensu, er honum ráðlagt að halda sig heima í sjö daga frá upphafi veikinda.

5. Ekki er þörf á því að aðrir sem eru einkennalausir á heimili sjúklings haldi sig heima. Um leið og einkenna verður vart er mikilvægt að viðkomandi haldi sig heima í sjö daga frá upphafi einkenna.

6. Ekki er mælt með fyrirbyggjandi veirulyfjameðferð í skólum.

7. Vakin skal athygli á því að í síbreytilegum faraldri kunna að koma aðstæður þar sem endurmeta þarf þessar ráðleggingar. Til þess kann að koma að taka þurfi afstöðu til þess hvort tilteknir skólar geti haldið áfram starfi vegna fjarvista nemanda eða kennara.




Höfðaskóli
545 Skagaströnd
Sími: 452 2800
Fax: 452 2782
hofdaskoli@skagastrond.is

  Tilkynningar
 
Dagatal
< september >
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3
< 2010 >
  Valdir tenglar
  Heimili og skóli
Námsgagnastofnun
Skólavefurinn
Olweus
Mentor